Þátttakendur og endursöluaðilar

Takmarkið er að vörur framleiddar undir vörumerkinu Grænlamb fáist víða, bæði beint frá býli, í völdum verslunum og kjötvinnslum. Einnig bjóði hótel og veitingastaðir upp á Grænlambskjöt.

Í byrjun verður hægt að kaupa vörur beint frá býli frá nokkrum bæjum í Kelduhverfi.

Sveitabæirnir

Í dag eru þessir bæir með vörur til sölu undir merkjum Grænlambs

Árdalur

Árdalsafurðir

Árdalsafurðir framleiða um 2,5 tonn af lambakjöti á ári og er allt selt beint frá býli. Kjötið er látið hanga í 5-7 daga eftir slátrun og er unnið í kjötvinnslu búsins sem fékk starfsleyfi haustið 2022. Vörur Árdalsafurða eru því unnar að fullu á jörðinni og eru afhentar fullmeyrnaðar. Hægt er að skoða og panta vörur á heimasíðunni (ardalur.is) og samfélagsmiðlunum facebook og instagram.

Lón 2

Mórúnir

Í Lóni eru um 520 vetrarfóðraðar kindur. Þar er rekið fyrirtækið Mórúnir með áherslu á ullarafurðir af eigin kindum.  Mórúnir bjóða upp á jurtalitað band og band í sauðalitunum.  Í Lóni eru líka ræktað forystufé og feldfé með áherslu á ullarnýtingu.  Mórúnir eru bæði með gestastofu á bænum og vefverslun (morunir.is). 

Til að panta smelltu hér:

 Forystu- og feldfjárull

 Jurtalitað mjúkband

 Mjúkband í sauðalitunum

Fjöll 2

 

Fjöll 2 bíður uppá lambaskrokka til sölu á haustin, slátrað og sagað í sláturhúsi Norðlenska á Húsavík. fjallabuid@gmail.com 

862 8582 

869 3484