DSC06346
Hvers vegna Grænlamb?

Mikilvægt er að beina sauðfjárrækt inn á vel gróin beitilönd

Landnýting

Viðvarandi deilur hafa verið vegna landnýtingar illa gróins lands.

Gróðurþekja

Einungis 38% beitilanda á Íslandi eru vel gróin í samanburði við 90% lands í Kelduhverfi

Framleiðsla

Neysla lambakjöts dregst sífellt saman

Kolefnisspor

Kolefnisfótspor lambakjöts er stórt

"Framtíðarsýnin er að allar sauðfjárafurðir á Íslandi verði framleiddar á vel grónu landi & kolefnishlutlausar”

Sjálfbærni

Grænlamb byggir á sjálfbæru og vel grónu beitilandi

Neytendur

Grænlamb gefur neytendum kost á lambakjöti sem framleitt er í sátt við náttúruna

Verðmæti

Grænlamb eykur verðmætasköpun í landbúnaði og stækkar markaðinn

Af hverju?

Hver var kveikjan

Á vordögum 2021 sá Guðríður auglýsta “Hacking Norðurland”, nýsköpunarkeppni á netinu. Vopnuð hugmyndinni um að náttúrulegar aðstæður til framleiðslu sauðfjárafurða væru einstakar í Kelduhverfi fékk hún til liðs við sig tvo öfluga sveitunga sem einnig höfðu gengið með svipaðar hugmyndir í kollinum.  Skemmst frá því að segja að þær komu, sáu og sigruðu í keppninni.  Í framhaldinu hlutu þær myndarlegan styrk frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra til að vinna áfram með hugmyndina.

Teymið

MSc Skógfræði, sauðfjárbóndi í Lóni.

Skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni.

Eigandi Mórúna-ullarlitunar.

Guðríður Baldvinsdóttir

BSc Búvísindi, sauðfjárbóndi á Fjöllum 2.

Héraðsfulltrúi Landgræðslunnar.

 

Berglind Ýr Ingvarsdóttir

BSc Hestafræði, sauðfjárbóndi í Árdal.

Eigandi Árdalsafurða.

Héraðsfulltrúi Landgræðslunnar

 

Salbjörg Matthíasdóttir