Vöktun á gróðurfari
Nánar um Grólind
Hlutverk Grólindar er að “gera heildaryfirlit um stöðu gróður- og jarðvegsauðlinda með samþættingu á fyrirliggjandi gögnum, nýjum fjarkönnunargögnum, upplýsingaöflun í felti í samstarfi við almenning og neti af mælireitum.”
“Við þróun einfaldra vísa til að meta sjálfbærni landnýtingar er nauðsynlegt að hafa skilning á áhrifum mismunandi landnýtingar á uppbyggingu og virkni vistkerfa. Í verkefninu er stefnt að því að auka þennan skilning með vöktun á gróður- og jarðvegsauðlindum landsins, safna saman þeirri þekkingu sem þegar er til staðar og auka þekkingu okkar með rannsóknum.”
Af heimasíðunni grolind.is
Grólind vaktar gróður- og jarðvegsauðlindirnar og gefur reglulega út kort sem sýnir stöðumat af ástandi auðlindanna.
Skilgreininga á ástandsflokkum gróðurs
Á mynd til hægri sést flokkun beitilands Keldhverfinga í ástandsflokkana
- flokkur : svæði með takmarkaða virkni, lélegan vatnshag og/eða lítinn stöðugleika auk mikils rofs.
- flokkur: svæði með takmarkaða virkni, lélegan vatnshag og/eða lítinn stöðugleika auk mikils rofs.
- flokkur: eru oftast svæði með nokkra eða talsverða virkni og talsvert rof en geta einnig verið með litla virkni og lítið rof (t.d. mosavaxinn hraun) yfir í svæði með nokkuð háa vistgerðaeinkunn en rof er töluvert/mikið (t.d. vel gróin svæði með virkum rofabörðum).
- flokkur: eru svæði sem fá miðlungs einkunn fyrir vistgerðaflokk en eru með lítið rof eða svæði með háa vistgerðaeinkunn en nokkurt rof (t.d. mjög vel gróin svæði með einhverju rofi).
- flokkur: eru svæði með háa einkunn fyrir vistgerð og lítið rof